Ástún 12, 200 Kópavogur
69.800.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
78 m2
69.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1982
Brunabótamat
44.350.000
Fasteignamat
56.650.000

Eignastofan fasteignamiðlun kynnir: höfum fengið í einkasölu glæsilega þriggja herbergja íbúð á 2. hæð við Ástún í Kópavogi. Eignin skiptist í forstofu, hol, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, þvottahús og geymslu í kjallara.
Íbúðin hefur öll verið endurnýjuð á mjög smekklegan hátt.
Þvottahús er innaf forstofu innréttingu.
Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu alrými. Þaðan er útgengt út á svalir.  Eldhús með hvítri L laga innréttingu, helluborð, gufugleypir og bakaraofn.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp.
Barnaherbergi með fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturtu, nýrri innréttingu með vask og salerni.
Sér geymsla í kjallara fylgir íbúð.
Í sameign hússins er hjóla og vagna geymsla ásamt tveimur herbergjum og íbúð sem er í útleigu. Leigutekjur renna í hússjóð.
Hverri íbúð í blokkinni fylgir eitt sérmerkt bílastæði við húsið.
Gólfefni íbúðarinnar er parket nema á baðherbergi og þvottahúsi þar sem eru flísar.
Árið 2021 var hafist handa við viðgerðir á húsinu að utan og kláruðust þær framkvæmdir nánast allar sumarið 2023. Skipt var um teppi í stigagangi. Hússjóður stendur vel og eru 3 leigurými sem tilheyrir sameign hússins þar sem leiga rennur í hússjóð.
Um er að ræða góða og vel staðsetta eign, örstutt í leik- og grunnskóla og öll önnur þjónusta skammt frá.
Upplýsingar veitir Kristinn B. Ragnarsson viðskiptafræðingur / löggiltur fasteignasali í síma 8984125 eða á netfanginu [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.