Eignastofan fasteignamiðlun kynnir: höfum í einkasölu húsnæði á 2. hæð við Gullsléttu 18 í Reykjavík. Húsnæðið er skráð sem vinnustofa, alls 127,9 fermetrar, matshluti 01-0208.
Aukin lofthæð, um 2,8-3,0 metrar, húsnæðið býður upp á ýmsa möguleika; opið rými, skrifstofur/herbergi. Eldhús fullfrágengið með tækjum. Flotuð gólf. Rúmgóðar svalir.
Á baðherbergi eru gólf og veggir flísalagðir. Innrétting, spegill, sturta, blöndunartæki og salerni.
Húsnæðið er upphitað með gólfhitakerfi. Malbikuð og afgirt lóð.
Upplýsingar veitir Kristinn B. Ragnarsson viðskiptafræðingur / löggiltur fasteignasali í síma 8984125 eða á netfanginu [email protected]