Eignastofan fasteignamiðlun kynnir: höfum fengið í sölu húseign við Aðalgötu á Siglufirði.Frábært tækifæri - hentar fyrir gistiheimili eða breyta í íbúðir - miklir möguleikar í miðbæ Siglufjarðar - Húsið er 342 fm. á 3 hæðum og bílskúr. skiptist í 214,4 fm. hús og 128,6 fm. skúr.
Búið að skipta um allt bárujárn, skipta um fúin fótstykki, allar útihurðir, glugga hluta í risi og einnig skipta um og setja nýtt járn á hálft þakið. (þakjárn er til staðar ásamt pappa og saum á hinn hlutann). Á miðhæð er fullbúinn íbúð með 3 herbergjum, nýju baði og nýju eldhúsi. Nýtt eikarparket á gólfum. Í risi er búið að rífa allt út og setja einangrun í gólf og þak og 20 mm spónarplötur eru á gólfi. Rýmið er opið og tilbúið til að byggja upp risíbúð. Gipsplötur eru til á alla veggi í kjallara. Loftaplötur ca. 50 fm fylgja og eru í kjallara. Viðbygging (skúr) er ekki í góðu standi og þarfnast töluverðs viðhalds.Töluvert af ónýtu timbri og fleira rusl þarf að hreinsa burtu. Annars eru möguleikar miklir með þetta hús.
Húsið er staðsett í miðbæ Siglufjarðar í göngufæri frá höfninni. Ýmiss skipti möguleg.
Upplýsingar veitir Kristinn B. Ragnarsson viðskiptafr. / lögg. fasteignasali í síma 8984125 eða á netfanginu [email protected]