Eignastofan fasteignamiðlun kynnir: höfum fengið í einkasölu glæsilega íbúð á 1. hæð í nýlegu lyftuhúsi í miðbæ Reykjavíkur, frábær staðsetning og fallegur bakgarður á þessum vinsæla stað. Komið er inn í opna forstofu með parket á gólfi. Stofan er rúmgóð með parketi á gólfi. Baðherbergið flísalagt hólf í gólf með sturtuklefa og upphengdu salerni. Tvö svefnherbergi með parketi á gólfi.
Eldhúsið er með góðri eikarinnréttingu, nýlegum tækjum. Hægt að ganga út á sér verönd sem fylgir íbúðinni.
Sameignin er sérlega björt og snyrtileg, sameiginlegt þvottahús á hverri hæð og hjólageymsla í kjallara. Íbúðinni fylgir sér geymsla í kjallara. Sameiginleg útisvæði bak við húsið.
Vönduð íbúð í nýlegu lyftuhúsi á þessum frábæra stað.
Upplýsingar veitir Kristinn B. Ragnarsson viðskiptafræðingur/lögg.fasteignasali í síma 8984125 eða á netfanginu [email protected]