Eignastofan fasteignamiðlun kynnir: höfum fengið til sölu 3ja herbergja 105,5 fm íbúð á jarðhæð við Álfkonuhvarf 45 í Kópavogi.
Nánari lýsing : Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. Hol með plastparketi á gólfi. Barnaherbergi með plastparketi á gólfi og fataskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi , baðkari og sturtuklefa, skápur undir vaski. Hjónaherbergi með plastparketi á gólfi og fataskáp. Þvottahús með flísum á gólfi. Eldhús með plastparketi á gólfi og ágætri eldhúsinnréttingu, eldhús er opið inn í stofu. Stofa með plastparketi á gólfi, hurð út á verönd.
Rakaskemmdir eru í útvegg í barna- og hjónaherbergi. Gluggatjöld í stofu eru ónýt. Plastparket þarfnast endurnýjunar. Vaskaskápur og blöndunartæki þarfnast endurnýjunar. Yfirfara þarf ofna- og neysluvatnslagnir. Rafmagn þarf að yfirfara.
ÍLS sem er eigandi eignarinnar mælir sérstaklega að eignin sé skoðuð með fagmönnum og að lagnir séu myndaðar. Ekki er vitað um ástand heimilistækja.
Upplýsingar veitir Kristinn B. Ragnarsson viðskiptafræðingur / lögg. fasteignasali í síma 8984125 eða á netfanginu [email protected]