Eignastofan fasteignamiðlun kynnir: höfum fengið til sölu fallegt parhús við Læjarmel í Hvalfjarðarsveit. Um er að ræða parhús á einni hæð í þéttbýliskjarna við Hagamel í Hvalfjarðarsveit.
Komið inn í forstofu með flísum á gólfi og skáp. Stofan er björt og rúmgóð ásamt borðstofu með parketi á gófi. Í eldhúsi er falleg viðarinnrétting með góðum tækjum, gófefni eru flísar.
Svefnherbergin eru alls fjögur í dag og búið er að taka hluta af bílskúr undir eitt herbergi, gófefni er parket. Baðherbergið er með góðri innréttingu, rúmgóðri sturtuaðstöðu og upphengdu klósetti. Baðherbergið er allt flísalagt. Þvottaherbergi er rúmgótt með innréttingu. Stór og fallegur garður ásamt stórri timburverönd. Mikill gróður. Leikskóli er í hverfinu, grunnskóli í sveitinni og stutt í alla þjónustu.
Upplýsingar veitir Kristinn B. Ragnarsson viðskiptafr. / lögg. fasteignasali í síma 5377500, 8984125 eða á netfanginu [email protected]